Fara í efni

Miðlægir samningar

RK 14.25 Öryggisþjónusta

  • Gildir frá: 01.08.2022
  • Gildir til: 01.08.2025

Um samninginn

Rammasamningur um öryggisþjónustu tók gildi 1. ágúst 2022, samningurinn er til tveggja ára með heimild til framlengingar þrisvar sinnum til eins árs í senn.
Samningurinn er framlengdur um eitt ár og gildir nú til 1. ágúst 2025.

Tegundir þjónustu
Viðskiptavinir sem þurfa á öryggisgæslu að halda hafa mismunandi óskir og þarfir. Sum fyrirtæki og stofnanir þurfa á mannaðri öryggisgæslu að halda, hvort sem er allan sólarhringinn, eingöngu á skrifstofutíma, eða eingöngu utan skrifstofutíma.

Hópur kaupenda þurfa fjargæslu, þ.e. að öryggisfyrirtæki vakti öryggiskerfi frá stjórnstöð.

Margir kaupendur þurfa öryggisþjónustu vegna flutnings verðmæta sem krefst fylgdar öryggisvarða.

Kaupendur gætu þurft á óháðri öryggisráðgjöf að halda þar sem lagðar eru fram hugmyndir og lausnir fyrir hvern og einn. Samningnum er skipt í þrjá flokka.

1. Mönnuð öryggisgæsla

2. Fjargæsla 

3. Flutningur verðmæta

Verkefni umfram 200 klst. skal bjóða út í örútboði.

Flokkur 1 - Mönnuð öryggisgæsla

Gæsla sem felur í sér veru öryggisvarða á staðnum á fyrirfram skilgreindum tímum. Mönnuð gæsla tekur til allrar gæslu sem krefst viðveru öryggisvarða. Móttökuþjónusta, eftirlit með fólksumferð, reglulegt eða tilfallandi eftirlit með fasteignum og lausamunum ásamt tilfallandi þjónustuverkefnum er innan þessa flokks. Slík öryggisgæsla getur verið viðvera öryggisvarða á stað sem vakta skal allan sólarhringinn, eingöngu á opnunartíma, utan opnunartíma eða á öðrum þeim tíma sem kaupandi óskar. 

Þessi flokkur tekur einnig til öryggisgæslu á ráðstefnum, fundum eða öðrum viðlíka atburðum þar sem óskað er mannaðrar öryggisgæslu í nánar tiltekinn tíma.

Flokkur 2 - Fjargæsla

Þessi flokkur tekur til vöktunar öryggiskerfa frá stjórnstöð. Megináhersla þessa flokks er vöktun á búnaði sem er hjá kaupanda þjónustunnar og viðbrögð þjónustuaðila við boðum og útköllum frá þeim búnaði. Í þessu felst m.a þjónusta við tengingu búnaðar sem er til staðar, viðhald búnaðarins, prófanir og vöktun. Þjónusta bjóðanda innan þessa flokks skal hið minnsta taka til vöktunar á brunaboðum, boðum um innbrot, vatnsleka, gasleka o.þ.h. Fjöldi búnaðareininga sem vaktaðar eru í hverju tilviki fyrir sig fer eftir óskum kaupenda hverju sinni. Fjarvöktunarjónusta skal einnig taka til þess að hafa samband við slökkvilið eða lögreglu í viðeigandi tilfellum þegar neyðarboð hefur verið sannreynt (í einstaka tilfellum getur þó verið að beint samband sé haft við lögreglu eða slökkvilið t.d ákveðin árásarboð og brunaboð sem slökkviliðið hefur skilgreint á þann hátt). Lyklavarsla og öryggisgeymsla ýmisskonar eru einnig innan þessa flokks.

Flokkur 3 - Flutningur verðmæta

Innan þessa flokks er allur flutningur verðmæta sem framkvæmdur er af öryggisvörðum eða krefst fylgdar öryggisvarða.

Samið var við þrjá aðila, Nortek, Securitas og Öryggismiðstöðina í flokkum 1, 2 og 3.

Kaup í rammasamningi

Kaupandi skal kaupa í rammasamningi:
a) Með beinum kaupum á þeim kjörum og skilmálum sem eru skilgreindir í rammasamningnum. Við bein kaup í rammasamningi undir 200 klst.  skulu kaupendur gera samanburð á samningsbundnum kjörum og verði seljenda. Ávallt skal velja hagkvæmasta boðið.

b) Verkefni umfram 200 klst. skal bjóða út í örútboði milli þeirra rammasamningshafa sem efnt geta samninginn..

Seljendur

Nortek ehf.
Fossaleynir 16
Sími: 4552000
Tengiliður samnings
Bjarki Páll Bergsson
Securitas hf.
Skeifan 8
Sími: 5807000
Tengiliður samnings
Jóhann Gunnar Jóhannsson
Öryggismiðstöð Íslands hf.
Askalind 1
Sími: 5702400
Tengiliður samnings
Kristinn Loftur Einarsson

Skoða kjör

Kaupendur geta skoðað kjör í samningi með því að skrá sig inn.