Leiðbeiningar um rafræna þátttöku í hönnunarsamkeppni með nafnleynd
Þátttakendur í hönnunarsamkeppni með nafnleynd þurfa að skrá sig nafnlaust í útboðskerfið TendSign eftir neðangreindum leiðbeiningum.
Ekki er heimilt að skrá sig til keppni öðruvísi en undir sérstakri skráningu í útboðskerfið. Ef þátttakandi sendir inn tilboð sitt undir eigin nafni og eigin fyrirtækjaskráningu á hann á hættu á að innsend tillaga verði metin ógild.
Leiðbeiningar:
- Þátttökunúmer
Þátttakandi velur sitt 7 stafa númer tilviljunarkennt (þannig að ekki er möguleiki á að rekja númer til þátttakanda) til að nota við þátttöku.
Hér á myndinni er sýnt dæmi um hvernig er hægt að fara inn á google.com og slá inn “random number generator” og biðja um númer að lágmarki 1000000 og að hámarki 9999999.
Þátttakanda er einnig frjálst að velja og ákveða sitt eigið 7 stafa þátttökunúmer. Það má þó ekki vera rekjanlegt á neinn hátt og sú hætta er fyrir hendi að tveir séu með sama númer, þannig að mælt er frekar með “random” aðferðinni. (Notið ekki númerið 6645400 , né eigin kennitölu).
Nú er þátttakandi kominn með sitt eigið 7 stafa þátttökunúmer í keppnina. Skráið númerið hjá ykkur, en gefið það ekki upp við neinn annan!! - Nýtt netfang.
Þátttakandi skráir sig fyrir nýju netfangi hjá t.d. yahoo.com, gmail.com, hotmail.com eða sambærilegt.
Þátttakandi velur sér dulnefni. Hér í dæminu er dulnefnið: Blær Mosdal.
Hér setur þátttakandi inn símanúmerið sitt , þar sem aðrir hafa ekki aðgang að þeim upplýsingum, þá er það í lagi. Skráið sjálf valið dulnefni og netfang hjá ykkur!!
- Innskráning
Þátttökuskjölin eru í TendSign.is
Þátttakandi skráir sig í kerfið á kennitölu Ríkiskaupa og þátttökunúmeri sbr. skref 1, heimilisfangi Ríkiskaupa, dulnefni og nýju netfangi þátttakanda sbr. skref 2.Stofnið gjaldfrjálsan aðgang að TendSign með því að smella á appelsínugula hnappinn.
Nýskráning í kerfið:
- Kennitala Ríkiskaupa, 6601694749 + 7 stafa þátttökunúmer
Þar sem kerfið þekkir ekki þá kennitölu kemur upp villumelding: The Corporate ID does not exist in TendSign, please register company in the form below.
Haldið áfram að fylla út í formið og ýtið svo á skrá. Villumeldingin stoppar ekki ferlið. - Heimilisfang Ríkiskaupa, Borgartún 7C, 105 Reykjavík
- Símanúmer Ríkiskaupa, 530 1400
- Kennitala Ríkiskaupa, 6601694749 + 7 stafa þátttökunúmer
Undir: “Individual information”:
a) Dulnefni þátttakanda
b) Nýtt netfang þátttakanda
Nota skal símanúmer Ríkiskaupa eins og á myndinni.
Hér í dæminu er 6601694749 kennitala Ríkiskaupa og þátttökunúmerið í dæminu er 6645400,
þar sem þátttakandi setur sitt eigið “random” númer.
Hér í dæminu er dulnefnið Blær Mosdal, þar sem þátttakandi setur sitt eigið dulnefni.
- Öll samskipti í samkeppninni fara alfarið fram í gegnum þennan dulkóðaða þátttakanda, þ.m.t. fyrirspurnir og svör. Þátttakendur nota einungis nýja netfangið og dulkóðuðu Tendsign skráninguna til samskipta í rafrænu útboðsumhverfi fyrir keppnina.
- Einungis þátttakandi veit hver skráði sig fyrir netfanginu eða er á bak við númerið.
- Niðurstöður dómnefndar verða tilkynntar í útboðskerfinu TendSign og sent á netföngin sem búin voru til af þessu tilefni.
- Ríkiskaup sendir tilkynningu á netföngin ásamt sérstökum kóða þannig að þátttakandi getur sannað að hann sé á bak við viðkomandi netfang.
- Þegar niðurstöður dómnefndar liggja fyrir mun Ríkiskaup óska eftir upplýsingum um þátttakendur og höfunda, þ.e. hver er á bak við netfangið og þátttökunúmerið.
- Ítrekað er að þátttakendur skrái hjá sér nýju netföngin og þau lykilorð sem þar eiga við, því þar koma áminningar útboðskerfis um nýjar fyrirspurnir og svör og er það alfarið á ábyrgð þátttakanda að fylgjast þar með. Gott er að setja reglu um áframsendingu í nýja netfangið um að póstar fari í það á netfang sem þátttakandi notar mest.
- Athugið! Fyrir næstu samkeppni skal svo endurtaka ferlið. Netfangið er einungis nýtt í þessa ákveðnu samkeppni og búa skal til nýjar innskráningar fyrir hverja samkeppni, með nýju tilviljunarvöldu númeri og nýju netfangi.