21680 - Verkfræðiráðgjöf Grundaskóla C álma
Ágæti viðtakandi
Það tilkynnist hér með að tilboð Verkfræðiskrifstofunnar Vísjá hefur verið valin og endanlega samþykkt og er því kominn á bindandi samningur milli aðila.
Þar sem aðeins eitt lokatilboð barst er val og taka tilboða send á sama tíma. Ákveðið hefur verið að ganga að ofangreindu tilboði þrátt fyrir að það sé yfir kostnaðaráætlun þar sem kaupanda hefur tekist að afla þess fjár sem var umfram kostnaðaráætlun. Er því ofangreint tilboð endanlega samþykkt.
Í XI. kafla laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) er fjallað um kærunefnd útboðsmála. Þar kemur fram í 1. mgr. 106 gr.: Kæra skal borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kröfu um óvirkni samnings er þó heimilt að bera undir nefndina innan 30 daga frá framangreindu tímamarki. Þó verður krafa um óvirkni samnings ekki höfð uppi þegar sex mánuðir eru liðnir frá gerð hans. Nánari ákvæði um fresti eru í 106. gr. Fyrir hverja kæru skal kærandi greiða kærugjald að fjárhæð 150.000 kr.
Í kæru skulu koma fram upplýsingar um kæranda, þann aðila sem kæra beinist að (varnaraðila) og ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem er kærð. Í kæru skulu koma fram kröfur kæranda ásamt stuttri lýsingu málsatvika og málsástæðna og rökstuðningur. Kröfugerð kæranda skal lúta að úrræðum nefndarinnar samkvæmt lögum þessum. Kærandi skal tilkynna kaupanda um kæru eins skjótt og mögulegt er.
Lög um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) eru birt á heimasíðu Alþingis: http://www.althingi.is/lagas/nuna/2016120.html
Hér er að finna nánari upplýsingar um kærunefnd útboðsmála og frekari leiðbeiningar um kæruheimildir:https://www.stjornarradid.is/verkefni/rekstur-og-eignir-rikisins/opinber-innkaup/kaerunefnd-utbodsmala/
Netfang kærunefndar útboðsmála er knu@yfirskattanefnd.is og símanúmer nefndarinnar er +354 575 8700.
Ríkiskaup þakka fyrir þátttökuna.