SkilmálarKaupandi skuldbindur sig til að greiða Ríkiskaupum fyrir umbeðna og veitta þjónustu samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar á hverjum tíma á grundvelli tímaskráningar. Gjaldskrá Ríkiskaupa
Komi upp ágreiningur um ákvörðun við val á tilboðum milli Ríkiskaupa sem umsjónaraðila útboðs og kaupanda er heimilt að vísa ágreiningnum til fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Kaupandi ábyrgist gagnvart Ríkiskaupum greiðslu alls málskostnaðar, bótakrafna og alls annars kostnaðar sem hlotist getur, þ.m.t. vegna kæru og málaferla bæði fyrir kærunefnd útboðsmála og dómstólum, í tengslum við þetta verkefni. Kaupandi greiðir bætur vegna mistaka við útboð og önnur innkaupaferli. Ríkiskaup veita ráðgjöf en kaupandi ber sjálfur ábyrgð á endanlegri útfærslu útboðsgagna og innkaupaferils.
Kaupandi hefur kynnt sér viðmið um góða starfshætti við opinber innkaup og ákvæði almennra hegningarlaga um mútuþægni. Sjá viðmiðin hér
Ef um A-hluta stofnun er að ræða staðfestir kaupandi að hann hafi kynnt sér reglugerð nr. 643/2018 um undirbúning, gerð og eftirfylgni samninga um framkvæmdir, rekstur og afmörkuð verkefni og staðfestir jafnframt að hann uppfylli kröfur hennar.
Þegar verkbeiðni hefur verið send er sendur staðfestingarpóstur með beiðninni á netfangið sem gefið var upp. Ef staðfestingarpóstur berst ekki vinsamlega hafið þá samband við Ríkiskaup utbod@rikiskaup.is eða í síma 5301400.
Allt að tvær vikur geta liðið frá dagsetningu verkbeiðnar þar til hafist verður handa við verkefnið.