Innkaupavefur ríkisins
Innkaupavefur ríkisins er hagræðingarverkefni til þess fallið að auðvelda stofnunum að framkvæmda hagkvæm innkaup á grundvelli gerðra samninga.
Fjármála- og efnhagsráðuneytið setti verkefnið á laggirnar með þeim tilgangi að fá betri yfirsýn yfir öll innkaup ríkisins.
Stofnanir fá aðgang að „Vefverslun innkaupastjóra“ og geta gengið frá kaupum á vörum innan rammasamninga eða þeim sem samþykktar hafa verið inn á vöruskrá vefsins. Óskráðar vörur verður einnig hægt að panta með vörubeiðnum. Pantanir sem hafa verið samþykktar skv. fyrirfram ákveðnu samþykktarferli berast birgjum beint frá vefnum í formi pdf-skjals með tölvupósti. Stefnt er að rafrænum sendingum pantana á síðari stigum.
Á verkefnaskrá í fjármálaáætlun ríkistjórnarinnar fyrir árin 2020-2024 er „Innleiðing á innkaupakerfi fyrir stofnanir A-hluta“. Samkvæmt henni á að ljúka innleiðingu innkaupavefsins hjá öllum stofnunum í A-hluta fyrir árslok 2022. Fjármála- efnahagsráðuneyti, Fjársýsla ríkisins og Ríkiskaup eru ábyrgðaraðilar verkefnisins.
Vefverslunin er í þróun og má búast við að verð geti tekið breytingum í innkaupaferlinu. Umbætur á kerfinu eru í stöðugri vinnslu og því þiggjum við allar ábendingar sem stuðlað geta að betrumbótum kerfisins.
Kennslumyndbönd um innkaupavefinn: