Vistvæn innkaup
Í aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda til ársins 2030 er kveðið á um að vistvæn innkaup verði gerð að almennri reglu við innkaup ríkisaðila og að umhverfis- og loftslagssjónarmið verða hluti af stefnu um sjálfbær opinber innkaup.
Útgangspunkturinn er að ekki þurfi sérstaka stefnu um vistvæn innkaup heldur að umhverfis- og loftslagssjónarmið verði hluti af stefnu ríkisins
um sjálfbær opinber innkaup.
Ríkið kaupir á hverju ári vörur og þjónustu fyrir 177 milljarða króna og því mikil tækifæri
fólgin í að marka skýra umhverfisstefnu varðandi innkaupin.
Tækifæri eru til að gera margvíslega innkaupaflokka mun vistvænni:
- Í öllum rammasamningum er kveðið á um umhverfisskilyrði og viðurkenndar umhverfisvottanir.
- Minnka kolefnisspor verulega með breytingum á hönnun mannvirkja, notkun á umhverfisvænni steypu og öðrum breytingum varðandi vistvænni aðföng byggingavara.
- Innkaup matvæla. Íslenska ríkið getur sem stórkaupandi fyrir mötuneyti sín haft víðtæk áhrif á eftirspurn eftir matvælum, stuðlað að umhverfisvænum innkaupum, dregið úr kolefnisspori og eflt nýsköpun. Í innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila, frá 2019, er meðal annars lögð áhersla á að innkaupaferlar breytist þannig
að mötuneyti fái aðgang að umbúðalausum matvælum og að hannað verði opinbert
reiknilíkan fyrir kolefnisspor matvæla.